Icelandic opalfestival......

Víst kominn smá tími síðan maður skrifaði niður eitthvað en sona er þetta víst bara stundum. Helst í fréttum er annars að hún Freyja á afmæli í dag, óskum henni að sjálfsögðu til hamingju með daginn. Í öðrum fréttum er það helst að við buðum til gleðskaps hérna á Via Bessa síðasta föstudag. Við vorum nú ekkert að bjóða neitt hrikalega mörgum en samt þó nokkrum til að geta haldið smá teiti og athugað hvort að nágrannarnir séu ekki bara rólegir í húsinu. Það komu um 15 manns eða svo í teitið sem gekk alveg ótrúlega vel fyrir sig, höfðum keypt græjur fyrr um daginn, bassa box og 2 hátalara, alveg bara helvíti góður hljómur og kostnaðurinn ekki nema um 4000þúskall ísl, ekki mikið það. Ég held að fjölbreytni í mannskapnum sem kom hafi verið nokkuð góður líka eða um um 10 þjóðerni, ekki slæmt miðað við heildina sem kom. Við áttum nokkrar flöskur af hressleika sem var boðið uppá, 2 tegundir af Ópal og 1 brennivíns flösku. Það skondna við þetta er að flestum fannst brennivínið betra, það er náttúrulega bara ofar mínum skilning held ég, brennivín er viðbjóður. Held samt að brennivínið sé nær einhverju sem þetta lið drekkur frekar en við. Allavega var fólk bara ánægt með þetta, vorum með einhverja heita klassíska rétti sem maður fær í flestum teitum heima, þau hefðu aldrei smakkað neitt af því og fannst það helvíti gott, ekkert af því. Við vorum með smá áhyggjru af nágranna dóti hérna, þó svo við höfum aldrei fengið neinar kvartanir eða neitt þannig en það stendur í lögum af eftir 10 skal sko vera hljóð í bara öllum bænum held ég. Sem dæmi þá vorum við í teiti um daginn vorum að fara út klukkan 10, löggan kom korter yfir 10 til að passa að ekki væru meiri læti, ótrúlega skrítið en ég held að þetta dæmi sé nú eitthvað öðruvísi reyndar.

Annað sem fólk var alveg ótrúlega hrifið af og það er íbúðin sjálf, ég man eftir þegar við Arnar og Auðunn, þýskalandsliðið, bjuggum saman í þýskalandi var sú íbúð yfirleitt kölluð the icelandic palace. Ég veit nú ekki hvað við hérna í lugano ættum að kalla þessa íbúð en hún er töluvert mikið stærri og sem partypleis er hún ótrúlega góð. Erum með risasvalir sem eru inní íbúðinni sem gerir hana ótrúlega bjarta og skemmtilega, held að flestir hafi viljað fá þessa íbúð sem við erum í. Sérstaklega þar sem við virðumst vera borga miklu minna eða sama og flest aðrir, og erum 2 aukaherbergi :) og náttúrulega 4 svalir sem er nauðsynlegt fyrir hvaða íbúð sem er.

Planið næstu daga er víst lærdómur og lærdómur, jú og keppa smá í fóbolta á morgunn og hinn, mitt lið, the masters team er að standa sig helvíti vel í riðlinum og erum í 2 sæti. Alltaf gaman þegar vel gengur en helvíti geta þessir ítalir stundum klappað tuðrunni, alveg ótrúlegt, og þeir eru óttalegar kellingar....... 

þangað til næst.........passið ykkur á bílunum........hættulegt......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djös fyllibyttuháttur er þetta, FUSS! Btw ertu búinn að finna skíðapleis fyrir okkur?! :)

Eddi (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 10:03

2 identicon

Heyrðu ég er búinn að finna skíða pleis, heitir laax held ég að það sé skrifað, bara ungt fólk, góðar brekkur, ódýrt og gott pleis. Segja allir að það sé best, frægast er st moritz en það er eitthvað posh dæmi og allir mega ríkir og snobbaðir.

Kristjan (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 14:40

3 identicon

eru allir í heiminum að fara á bretti nema ég!

sara (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 00:41

4 identicon

laax er það, heimasíðan hér: http://www.laax.com/flash/index.php?l=en#/de/home

lítur ágætlega út alveg...

sævar (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 10:37

5 identicon

Djöfull er gaman að lesa þetta. Vaxa einhverjir runnar í hornunum á þessari íbúð eins og þeirri þýsku?

Snæfeld (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband