9.12.2008 | 22:29
Smá kokkablogg.......
Já búinn að vera horfa soldið á herra Oliver og sá hann kokka nokkuð girnilega kjúlla. Ákvað sona að hafa soldið sona mitt tvist á þessu. Fengum semsagt Peter í heimsókn til okkar á laugardagskvöldið og ákvað að prufa þetta. Vorum semsagt með kjúlla, eitt og hálft kíló þannig nokkuð stór fugl. Jæja til að hafa smá kryddmarineringu var semsagt ferskt rósmarín, smá fersk mynta, sítrónubörkur, slatti af hvítlauksrifjum, salt pipar og massað soldið saman í mortéli, olíu bætt við. Þetta er nett mauk sem er makað duglega yfir fuglinn, ekkert vera feimin við þetta. Einnig var sítróna soðin í einhverjar mínútur og sett í afturendann. Þar sem herra Oliver hafði innbakað þennan kjúkling gat ég ekkert verið verri en það. Útbjó semsagt deig, það var ekki flókið, hveiti og vatn, verst að ég er ekki sá bestur að baka og það komu göt á þetta þannig kallað var í Gunnar bakara til að pakka kjúklingnum inn. Þetta var látið lúlla aðeins í ofninum í sona 100 mínútur, sirka eitthvað svoleiðis. Með þessu voru svokallaðar krumpukartöflur, litlar sætar kartöflur makaðar í smá olíu og maldon salti, látið liggja inní ofni í sona klukkutíma, orðnar vel krumpaðar og góðar. Við eldum ekki mikið án þess að hafa sósu, þannig auðvitað var smá sósa, sveppir svitaðir í smjöri, hvítvín, kraftur, mjólk og síðan pakki af sveppasósu :D Verð nú að segja að kjúklingurinn sjálfur var með safaríkari kjúklingum sem ég hef etið, og hef etið þá nokkra. Mæli algjörlega með þessarri uppskrift. Sýnum smá myndir með þessu.
Hérna er hann semsagt innbakaður.
Lyktin sem kemur þegar hann er opnaður er líka hrikalega góð, virðist greinilega virka að hafa hann sona innpakkaðann.
Segir maður ekki bara svo gjörið svo vel, ég held það.
Langaði líka rétt að bæta því inn að ég bjó til mitt eigið majones í hádeginu í fyrsta sinn, er reyndar ekki mikill aðdáandi en þetta leit bara eitthvað svo vel út. Var með BLT sammara með smá heimamajó, ein eggjarauða, sinnep, olía (slatti), sítróna, basil (þurrt), hvítlauksrif og tjilli, salt og pipar, helvíti gott verð ég að segja.
þangað til næst.........fer að styttast í jólamatinn........
Athugasemdir
líst vel á þennan kjúlla hjá ykkur, sé alveg fyrir mér að hann sé vel safaríkur þar sem deigið heldur öllum safanum inni. Ég prófa við tækifæri!
sævar (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 09:39
Þarna er nú bara ein viðskiptahugmynd, getur farið að fjöldaframleiða Kristján's majones (örugglega bara betra en Gunnars majones
) Aldrei að vita nema að það sé hægt að græða einhverja aura á majones sölu.
Eva María (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 13:46
aujj það væri geðveikt, gæti fengið viðurnefnið Stjáni Majó.
Kristján (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 14:20
Það er ekkert betra en Gunnars mjaones:P jú kannski Gunnars remó
Gunni Berg (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.